Páll Eyjólfsson

ID: 12839
Fæðingarár : 1872
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1923

Páll Eyjólfsson fæddur árið 1872 í N. Múlasýslu. Dáinn í Vatnabyggð 6. desember, 1923. Paul Eyolfson vestra.

Maki: Þorbjörg Bjarnadóttir fæddist í Húnavatnssýslu 16. febrúar, 1873, d. á Borg í N. Dakota 6. mars, 1960.

Barnlaus en tóku í fóstur Louis Jacobs og frænku og nöfnu Þorbjargar f. 18. ágúst, 1908, dóttur Helga Bjarnasonar og Helgu Jóhannsdóttur.

Páll fór vestur til Nýja Íslands árið 1876 með foreldrum sínum, Eyjólfi Eyjólfssyni og Signýju Pálsdóttur og yngri bróður.  Þorbjörg fór einsömul vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1892. Páll nam land í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1904 í Kandahar/Dafoe byggð. Þar var líka tengdafaðir hans, Bjarni Helgason.