ID: 12386
Fæðingarár : 1885
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1965

Páll Jónsson Mynd VÍÆ IV
Páll Jónsson fæddist í N. Múlasýslu 14. nóvember, 1885. Dáinn í Manitoba 23. desember, 1965.
Ókvæntur og barnlaus.
Páll fór til Vesturheims árið 1903 með foreldrum sínum, Jóni Jónssyni frá Sleðbrjót og Guðrúnu Jónsdóttur. Þau settust að í Siglunesbyggð við norðanvert Manitobavatn. Páll vann þar eitthvað en var svo með eigin búskap í Vogum. Hann annaðist líka vöruflutninga.
