Páll Magnússon

ID: 8496
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1948

Páll Magnússon Mynd VÍÆ IV

Páll Magnússon fæddist í Eyjafjarðarsýslu 21. desember, 1864. Dáinn í Manitoba 2. september, 1948. Paul Magnuson vestra.

Maki: Guðný Friðbjarnardóttir f. 15. apríl, 1864 í Eyjafjarðarsýslu, d. í Saskatchewan 8. september, 1932.

Börn: 1. Magnús Valdimar f. 26. apríl, 1889 2. Friðbjörn f. 1891 3. Pétur f. 1893 4. Aðalsteinn f. 1896 5. Svava f. 1898 6. Adam f. 1900

Fluttu vestur um haf til Winnipeg í Manitoba árið 1901 og námu land nærri Leslie í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1904.

Við brottför þeirra frá Akureyri mælti séra Matthías Jochumsson:,,Þau voru einhver fyrstu hjónin sem ég gaf saman hér, nú fyrir fjórtán árum.Þóttu þá færri efnilegri, enda bæði listhæf og vel metin, og einhver sönghæfustu af yngri mönnum. Hann knár og karskur til sunds, sjófara og landiðju, en hún hin sæmilegasta kona og fyrirtaksmóðir. Börn þeirra voru öll röskleg fríð og mannvæn. En afkoma þeirra þótti miður vænleg, er börnum tók að fjölga, og einkum eftir að heilsa móðuföður barnanna tók að versna. Átti hann bróður í Ameríku, og í hans trausti létu þau tilleiðast að skrá sig til ferðar. Mun þeim þó hafa fallizt allmikið til um skilnaðinn, ekki síður en vinum þeirra að sjá þeim á bak.“