Páll Tómasson

ID: 8195
Fæðingarár : 1876
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1957

Páll Tómasson og Guðný Ólafsdóttir Mynd VÍÆ I

Páll Tómasson fæddist í Eyjafjarðarsýslu 1. febrúar árið 1876. Dáinn í Saskatchewan 24. október, 1957. Paul Thomasson vestra

Maki: 5. júní,1906 Guðný Ólafsdóttir fæddist í Brown byggð í Manitoba 24. mars, 1886. Dáin í Saskatchewan 1974

Börn: 1. Tómas Jóhann f. 12. júní, 1908, d. 7. janúar, 1927 2. Ólafur Helgi f. 11. mars, 1909 3. Júlíana Guðrún 29. janúar, 1910 4. Ágústa Margrét f. 1. ágúst, 1911 5. Sigurrós Þorbjörg f. 4. júní, 1913 6. Stefanía Þórdís f. 29. desember, 1914 7. Benedikt Hermann f. 1. janúar, 1917, d. 17. júlí, 1918. Fríða (Freda)

Páll flutti vestur með foreldrum sínum árið 1888 og fór fjölskyldan til Garðar í N. Dakota. Þaðan fluttu þau í Brown byggðina í Manitoba árið 1899. Páll flutti þaðan árið 1907 í Vatnabyggð í Saskatchewan. Nam hann land nærri Mozart.