ID: 9537
Fæðingarár : 1877
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1942
Petrea Guðfinna Þorláksdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 2. júní, 1877. Dáin í Winnipeg 6. júní, 1942.
Ógift og barnlaus.
Hún flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893 með foreldrum sínum, Þorláki Jónassyni og Kristrúnu Björnsdóttur og systkinum. Þau settust fyrst að í Argylebyggð, fóru þaðan árið 1909 til Dafoe í Vatnabyggð í Saskatchean. Eftir andlát móður sinnar árið 1921 flutti Petrea til Winnipeg.
