
Petrína Guðnadóttir Photo VÍÆ III
Petrína Guðnadóttir fæddist 11. nóvember, 1865 í N. Múlasýslu. Dáin í Grand Forks, ND 9. janúar, 1912.
Maki: 1881 Jón Valdimar Þorláksson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 3. nóvember, 1851. Dáinn í Winnipeg 26. október, 1924.
Börn: 1. Páll d. í æsku 2. Lovísa (Louisa) Guðfinna f. 10. október, 1884 3. Valdimar Steingrímur f. 24. nóvember, 1886 4. Guðný Pálína f. 7. september, 1888 5. Þorlákur Gunnar f. 12. september, 1890 6. Þórunn Laufey f. 19. febrúar, 1892 7. Grace Mabel f. 19. desember, 1894 8. Ester Aurora f. 13. nóvember, 1896 9. Inga Marín f. 5. maí, 1899.
Jón flutti vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1873 með foreldrum sínum, Þorláki G Jónssyni og Lovísu Níelsdóttur og systlinum. Hann fylgdi þeim í Ljósavatnsnýlenduna í Shawano sýslu 1875 og vestur til N. Dakota um 1880. Petrína flutti vestur til Nýja Íslands árið 1876 með móður sinni, Guðfinnu Jóhannesdóttur og stjúpföður sínum, Sigurgeiri Björnssyni. Þau bjuggu þar til ársins 1880, fóru þá suður til N. Dakota. Jón og Petrína bjuggu suðvestur af Mountain.
