
Pétur Bjarnason Mynd SÁGF

Hólmfríður Jósefsdóttir Mynd SÁGF
Pétur Bjarnason fæddist í Gullbringusýslu 21. nóvember, 1854. Dáinn í Arborg, Manitoba 19. ágúst, 1921.
Kona: 1879 1) Jóhanna Hafliðadóttir f. 23. febrúar, 1848, d. 1883 í Nýja Íslandi 2) 1885 Hólmfríður Jósefsdóttir f. 26. maí, 1853.
Börn: Með Jóhönnu 1. Eyjólfur f. 28. september, 1875 2. Auðbjörg f. 1. júlí, 1878 í Mikley 3. Guðný f. 26. ágúst, 1880 í Winnipeg, dó ung. Með Hólmfríði 1. Pétur Kristján f. 9. apríl, 1885 2. Sigurlaug, dó ung 3. Jónína f. 27. nóvember, 1890 í Mikley 4. Bjarni f. 6. október, 1895.
Pétur og Jóhanna fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og settust að í Mikley. Hólmfríður fór ekkja vestur árið 1882. Pétur bjó 15 ár í Mikley og 10 í Ísafoldarbyggð. Flutti í Lundarbyggð árið 1901 og bjó á sínu landi til ársins 1919 en þá seldi hann. Pétur bjó síðast í Arborg.
