Pétur Guðmundsson

ID: 1811
Fæðingarár : 1866
Dánarár : 1918

Pétur Guðmundsson fæddist í Húnavatnssýslu 15. ágúst, 1866. Dáinn í Nýja Íslandi 19. júlí, 1918.

Maki: Sigríður Þorsteinsdóttir f. í Rangárvallasýslu 1871, d. í Nýja Íslandi 27. maí, 1934.

Börn: 1. Guðmundur f. í Gullbringusýslu 22. september, 1899 2. Moníka f. á Gimli 25. janúar, 1905.

Pétur og Sigríður fluttu vestur til Manitoba árið 1900 og settust að í Nýja Íslandi. Bjuggu fyrst í Dvergasteini við Gimli en seinna í Baldurshaga í þorpinu.