Pétur Gísli Magnús Torfason fæddist í Reykjavík 20. september, 1877.
Maki: 4. október, 1910 Guðrún Skaftadóttir f. í Nýja Íslandi.
Börn: 1. Anna Eleanor f. í Chicago 12. janúar, 1912 2. Arthur Lloyd f. í Edmonton 26. júní, 1913 3. Hermann August f. í Edmonton 5. desember, 1914 4. Sylvia f. í Manitou í Manitoba 19. maí, 1819.
Pétur fór vestur um haf með móður sinni og systkinum til New York árið 1877 og þaðan til Chicago í Illinois árið 1887. Torfi Magnússon, faðir hans var þá þangað kominn og bjuggu foreldrar hans þar til ársins 1897 en þá fluttu þeir til baka til Íslands. Pétur flutti á fyrsta áratug 20. aldar til Glenboro og bjó þar. Þar kynntist hann Guðrúnu en hún var dóttir Skafta Arasonar landnámsmanns í Nýja Íslandi og Argylebyggð. Þau fluttu vestur til Edmonton í Alberta þar sem þau voru nokkur ár en sneru til baka til Glemboro og þaðan skömmu síðar til Manitou. Þau enduðu í Winnipeg.
