Ragnheiður S Jóhannesdóttir

ID: 19322
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1887
Fæðingarstaður : N. Dakota
Dánarár : 1935

Ragnheiður Steinunn Jóhannesdóttir fæddist 17. september, 1887 í N. Dakota. Dáin 5. júní, 1935 í Minneapolis.

Maki: Páll Snorrason f. í Árnessýslu 13. júní, 1878. Dáinn í Minneapolis 23. janúar, 1957. Paul Magdal vestra.

Börn: 1. Jóhannes Snorri f. 15. janúar, 1923 í Winnipeg 2. Gertrude Gróa f. 1924 3. Sarah f. 7. nóvember, 1925 4. Paul Norman f. 1. júní, 1927.

Páll mun hafa farið vestur árið 1915, sennilega til Winnipeg því þar bjuggu þau þegar fyrsta barn þeirra fæddist. Foreldrar Ragnheiðar, Jóhannes Jóhannsson og Guðrún Halldórsdóttir fluttu vestur árið 1883. Páll var trésmiður og skráður slíkur í Minneapolis árið 1930.