
Ragnhildur Jónsdóttir Mynd VÍÆ I
Ragnhildur Jónsdóttir fæddist í N. Múlasýslu 26. apríl, 1887. Dáinn í Manitoba 18. apríl, 1958.
Maki: 22. desember, 1920 Þorsteinn Guðmundsson f. í N. Múlasýslu 14. janúar, 1884, d. 21. mars, 1966 í Vatnabyggð.
Börn: 1. fósturbarn Hulda.
Ragnhildur var dóttir Jóns Jónssonar frá Sleðbrjót í N. Múlasýslu og konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur. Hún flutti með þeim til Mantitoba árið 1903. Þorsteinn fór vestur til Manitoba árið 1905 og kynnti sér aðstæður í Manitoba. Hann fór til Íslands árið 1908, sennilega vegna andláts föður síns, Guðmundar Jónssonar á Rjúpnafelli. Árið 1911 fer hann aftur vestur til Winnipeg, nú með móður sinni, ekkjunni Önnu Margréti Þorsteinsdóttur og bræðrum sínum, Páli og Björgvin. Þorsteinn flutti svo í Vatnabyggð árið 1915 og hóf búskap nærri Leslie.
