Ragnhildur Kristín Bjarnadóttir fæddist í Húnavatnssýslu 22. ágúst, 1850. Dáin 1934.
Barnsfaðir: Kristján Guðmundsson f. í Snæfellsnessýslu 11. ágúst, 1834, d. 14. október, 1899 í Mountain, N. Dakota.
Börn: 1. Guðbjörg f. 1875 2. Kristjana f. 1877 3. Guðmann Ágúst f. 1879, d. í N. Dakota 10. apríl, 1901 4. Guðmundur Árni f. 1880 5. Bjarni f. 1881 6. Björnína Kristín f. 1885 7. Guðbjartur Theodór f. 1888.
Í frásögn Kristjáns skjalfest 21. maí, 1889, kemur fram að Ragnheiður, kona hans og móðir tveggja, gat ekki eignast fleiri börn og með samþykki hennar, samþykkti Ragnhildur Kristín að ganga með og fæða önnur börn Kristjáns.
Hópur Kristjáns í vesturförinni taldi 10 manns því með vestur fóru Sigríður Salómonsdóttir, vinnukona hjá Kristjáni og Jósefína, yngri systir Ragnhildar. Þau fóru fyrst til Winnipeg þar sem þau heyrðu vel talað um land sunnan landamæranna í N. Dakota. Þangað flutti hópurinn og bjó alla tíð.
