Rannveig Rögnvaldsdóttir

ID: 7000
Fæðingarár : 1849
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla

Rannveig Rögnvaldsdóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1849.

Maki: Eggert Gunnlaugsson f. 7. ágúst, 1835 í Eyjafjarðarsýslu, d. 14. janúar, 1914 í N. Dakota.

Börn: 1. Sigtryggur f. 1873 2. Kristín Sigríður f. 1875, d. 1878 3. Drengur f. 1877, d. 1877 4.  Karl Vilhjálmur f. 1878 5. Jón f. 1879, d. 1951 6. Þórstína Sigríður f. 1883, d. 1951 7. Gunnlaugur Bjarni (G. B. Gunlogson) f. 10. júní, 1887 8. Ingibjörg Ruth f. 1890.

Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba með drenginn Sigtrygg árið 1876 og settust að í Nýja Íslandi. Nam land í Víðirnesbyggð og nefndi Miklabæ. Fluttu þaðan árið 1880 og námu land í Akrabyggð í N. Dakota.