
Rannveig Þorláksdóttir Mynd VÍÆ III
Rannveig Þorláksdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 19. júlí, 1855. Dáin í Winneconne, Wisconsin 12. desember, 1931.
Maki: Tönnes A. Miller, norskrar ættar. Séra Páll Þorláksson, nývígður prestur gaf þau saman í Shawano í Wisconsin árið 1875.
Börn: 1. John Miller. Upplýsingar vantar um annan son svo og fimm dætur sem lifðu móður sína.
Rannveig flutti til Vesturheims árið 1873 með foreldrum sínum, Þorláki Jónssyni og Lovísu Níelsdóttur. Þau settust að í Wisconsin og bjuggu í Shawano. Fluttu þaðan 1879 og settust að á Mountain í N. Dakota. Þangað flutti Rannveig og hennar fjölskylda árið 1883, námu land suður af Mountain en sneru aftur til Winneconne í Wisconsin eftir fáein ár. Þar bjó Rannveig alla tíð svo og börn hennar.
