Rósa Jóhannesdóttir fæddist 28. desember, 1872 í N. Þingeyjarsýslu. Dáin 1. júní, 1953 á Mountain.
Maki: 17. nóvember, 1894 Sigurður Júlíus Magnússon f. í S. Þingeyjarsýslu 27. janúar, 1867, d. á Mountain í N. Dakota 14. apríl, 1940.
Börn: 1. Matthildur Emilía f. 10. mars, 1896 2. Helga Sigríður f. 8. nóvember, 1897 3. Magnús Sigurður f. 25. desember, 1898 4. Elín f. 20. júní, 1900 5. Þórey f. 1. desember, 1902 6. Hannes Sigurður f. 23. mars, 1904, d. 5. febrúar, 1992 7. Hallfríður (Freda) f. 29. október, 1906 8. Kristbjörg Esther f. 1908 9. Kristján S f. 13. janúar, 1909 10. Oktavia Lára f. 7. október, 1917.
Rósa flutti vestur til N.Dakota árið 1883 með foreldrum sínum, Jóhannesi Torfasyni og Helgu Daníelsdóttur. Þau settust að á Mountain í N. Dakota. Sigurður fór vestur árið 1876 með móður sinni, Elínu Magnúsdóttur og systkinum. Þau settust fyrst að í Nýja Íslandi en þaðan fór Sigurður árið 1881 og nam land í Garðarbyggð. Flutti þaðan í nýtt hús á Mountain og hélt áfram búskap.
