Rósa Ólafsdóttir

ID: 8233
Fæðingarár : 1842
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1926

Rósa Ólafsdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1842. Dáin í Argylebyggð í Manitoba 3. nóvember, 1926.

Maki: Ísleifur Svanlaugsson dó á Íslandi.

Börn: 1. Sigtryggur f. 1864 2. Svanlaugur f. 1865 3. Sigríður f. 1869 4. Guðrún f. 1874 5. Jósep f. 1876 6. Laufey f. 1878 7. Margrét f. 1881 8. Anna f. 1883.

Rósa flutti vestur til Winnipeg árið 1903, samferða sonum sínum, Sigtryggi og Svanlaugi. Dætur hennar Laufey, Margrét og Guðrún voru þá þangað komnar. Rósa flutti í Argylebyggð og bjó þar.