Sesselja Ásbjarnardóttir fæddist 1. apríl, 1854 í N. Múlasýslu. Dáin í Los Angeles 21. febrúar, 1949. Edith Kline vestra..
Maki: 6. maí, 1888 í Minneota: Ágúst Guðmundsson f. á Íslandi árið 1859.
Börn: 1. Eva (Abbie) f. 1889 2. Ágúst Björn f. 3. september, 1899, d. 15. janúar, 1891 4. Sigríður (Sarah) f. c1892.
Sesselja flutti vestur um haf árið 1883, með hjónunum Páli Einari Jósefssyni og Kristínu Bjarnadóttur frá Ytri Hlíð í N. Múlasýslu. Ekki er vitað um vesturför Ágústs, hann er búsettur í Lyon sýslu árið 1888 þegar hann gengur í hjónaband. Þau hjón eru skráð íbúar í Marshall í Lyon sýslu í manntali 1895. Eldri kona, Sigríður Goodmanson, 66 ára, hugsanlega móðir hans, býr þá hjá þeim og þar segir hann hafa búið í Minnesota í 16 ár. Enn búa þau í Marshall árið 1910 en tíu árum síðar búa þau í Minneapolis.
