Sesselja Eyjólfsdóttir

ID: 13214
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1890

Sesselja Eyjólfsdóttir fæddist 15. október í N. Múlasýslu, 1856. Dáin árið 1890 í Nýja Íslandi.

Maki: Þorvaldur Þórarinsson f. í Hnappadalssýslu 4. desember, 1855, d. í Nýja Íslandi 22. ágúst, 1929.

Börn: 1. Eysteinn f. í Winnipeg 3. janúar, 1887 2. Steinunn f. við Íslendingafljót 7. desember, 1887, d. 18. desember, 1968 í Winnipeg 3. Barn fætt andvana.

Sesselja flutti vestur árið 1876 með foreldrum sínum, Eyjólfi Magnússyni og Vilborgu Jónsdóttur. Þau settust að í Unalandi í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi. Þorvaldur fór einsamall vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876. Fór til Nýja Íslands fljótlega en dvaldi þar stutt því hann fékk vinnu austur af Selkirk við járnbrautarlagningu. Þaðan lá leiðin norður í Mikley árið 1878 og 1881 var hann sestur að við Íslendingafljót. Bjó í Fljótsbyggð alla tíð.