Sesselja Pálsdóttir

ID: 9158
Fæðingarár : 1853
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Sesselja Pálsdóttir fæddist árið 1853 í Eyjafjarðarsýslu.

Maki: Benedikt Jónsson f. í S. Þingeyjarsýslu 22. júlí, 1838, d. í Alberta 12. júlí, 1910.

Börn: 1. Júlíus f. 1872 2. Benedikt f. 1872 3. Jón 4. Páll 5. Helgi 6. Guðlín.

Benedikt og Sesselja fluttu vestur með tvíburana árið  1873 og fóru til Ontario í Kanada. Þau bjuggu í Rosseau í tvö ár en fóru vestur til Nýja Íslands haustið 1875. Þar bjuggu þau í þrjú ár en fóru þá suður til N. Dakota. Benedikt var í fyrsta landkönnunarhópi með Jóhanni P Hallssyni sem könnuðu lönd vestur af Cavalier. Hann bjó fyrst í Hallson en nam land í Garðarbyggð árið 1880. Þaðan lá leið þeirra vestur í Markerville í Alberta árið 1888.