Sigfús Magnússon fæddist árið 1857 í N. Múlasýslu. Dáinn 12. desember, 1924 í Los Angeles.
Maki: 7. mars, 1895 Kristbjörg Jónsdóttir f. 1872 í N. Múlasýslu.
Börn: 1. Magnús Ingimar f. 29. nóvember, 1895 í Fljótsbyggð, d. í Los Angeles 1973 2. Guðlaug Margrét f. 7. desember, 1897, d. 27. febrúar, 1910 3. Jónína Kristín f. 1900 4. Sigurborg Margrét f. 22. apríl, 1908 í Lundarbyggð 5. Friðþjófur f. 10. maí, 1913.
Sigfús flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og fór til frænda síns, Sigfúsar Björnssonar í Fljótsbyggð. Fjárfesti í landi í byggðinni og þar hófu þau Kristbjörg búskap. Upp úr aldamótum fluttu þau í Lundarbyggð þar sem þau bjuggu í sjö ár áður en þau fluttu til Selkirk. Þaðan lá leiðin árið 1909 í Narrows við Manitobavatn en fóru þaðan tveimur árum síðar vestur að Kyrrahafi. Voru í Seattle einhvern tíma en settust svo að í Vancouver í Bresku Kolumbíu þar sem Sigfús opnaði mjólkurbúð en Kristbjörg saumaði fyrir efnaða fjölskyldu í borginni. Seinna ráku þau matvöruverslun í borginni en fluttu svo þaðan til Los Angeles árið 1924.
