Sigfús Magnússon

ID: 13828
Fæðingarár : 1845
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1932

Sigfús Magnússon og Guðrún Benediktsdóttir Mynd AÓÞ 1914

Sigfús Magnússon fæddist í S. Þingeyjarsýslu 19. mars, 1845. Dáinn 31. október, 1932 í Toppenish í Washington.

Maki: 29. júlí, 1876. Guðrún Emilía Benediktsdóttir f. í S. Þingeyjarsýslu árið 1854. Dáin 26. janúar, 1913 í Duluth.

Börn: 1. Bergþóra f. 20. maí, 1877 2. Þorgerður f. 28. desember, 1879, d. 1932 3. Leifur f. 7. júlí, 1882 4. Hilda 5. Amy f. 22. janúar, 1887 6. Vesta f. 5. mars, 1898. Fósturdóttir, Sigurrós Guðnadóttir f. 1872 fór með þeim vestur.

Sigfús fór vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1873. Vorið 1874 fór hann í landaleit í Nebraska og keypti land nálægt smábænum Firth suður af Lincoln. Hann skilaði því landi áður en  hann sneri aftur til Íslands haustið 1874 til að sækja heitmey sína.

Dráttur varð á vesturför til baka en þau fóru til Nebraska árið 1886 og settust að í Long Pine. Þar fékk hann borgararéttindi og nam land nærri þorpinu. Bjó þar einhver ár en flutti til Duluth í Minnesota árið 1892 þar sem hann bjó í mörg ár. Vinnukona, Guðrún Björnsdóttir f. 1834 kom með þeim vestur. Í manntali í Minnesota 1920 er Guðrún skráð hjá þeim. Sigfús flutti seinna vestur að Kyrrahafi til dóttur sinnar Bergþóru.

Íslensk arfleifð :