ID: 20319
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1907
Sigfús Sveinbjörn Jónsson fæddist í Lundar, Manitoba árið 1907. Hordal eða Hurdal vestra.
Maki: 1931 Sigurlaug Kristín Freeman f. 1911 í Lundar.
Börn: 1. Melvin Sigfús f. 1933 2. Kristjana Sigurbjörg Merilyn f. 1935
Sigfús var sonur Jóns Jónssonar og Kristjönu Jónsdóttur í Lundarbyggð. Sigurlaug var dóttir Sigurbjörns Jónssonar Freeman og Sigurbjargar Þóru Hallbjörnsdóttur í Lundarbyggð. Sigfús og Sigurlaug voru bændur í Lundarbyggð til ársins 1967, þá fluttu þau til Lundar.