ID: 2743
Fæðingarár : 1894
Fæðingarstaður : Dalasýsla

Sigmundur Grímsson Mynd VÍÆ III
Sigmundur Grímsson fæddist í Dalasýslu 18. mars, 1894.
Maki: Kristjana Stefánsdóttir f. 23. júlí, 1894 í Manitoba.
Börn: 1. Norman f. í Vancouver 27. apríl, 1922, d. 4. september, 1963 2. Ronald f. 12. desember, 1923 í Vancouver.
Sigmundur fór ungur til Reykjavíkur og lærði gullsmíði. Hann flutti vestur til Manitoba árið 1913 og settist að í Winnipeg. Þaðan flutti hann og Kristjana vestur til Vancouver þar sem Sigmundur opnaði verslun og verkstæði. Sjá meir í Atvinna að neðan.
