Sigmundur Jónsson

ID: 12591
Fæðingarár : 1845
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1903

Sigmundur Jónsson Mynd Brot

Soffía Björnsdóttir Mynd Brot

Sigmundur Jónsson fæddist 1. janúar, 1845 í N. Múlasýslu. Dáinn 28. apríl, 1903 í Argylebyggð í Manitoba. Sigmundur J. Johnson vestra.

Maki: 1874 Soffía Björnsdóttir f. 25. september, 1851, d. 1. maí, 1903 í Manitoba.

Börn: 1. Guðlaug f. 1875 á Íslandi 2. John S. f. 4. september, 1880 í Pembinabyggð í N. Dakota, d. 17. júní, 1960 í Stafholti í Blaine 3. Ragnheiður f. 22. maí, 1885, d. 4. júní, 1929 4.  Björn S. f. 16. janúar, 1887 í Garðar 5. Sigurjón S. f. 29. júní, 1888 í Garðar 6. Árni S. f. 4. ágúst, 1892 í Garðar 7. Kári S. f. 15. ágúst, 1894 í Garðar.

Sigmundur og Soffía fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og settust að í Nýja Íslandi. Nam Sigmundur land í Víðirnesbyggð og nefndi Hjarðarhaga en hann var ættaður frá Hjarðarhaga í Jökuldal. Móðir hans, ekkjan Guðlaug Sigmundsdóttir var þeim samferða ásamt systkinum Sigmundar og fleira venslafólki. Árið 1880 flutti Sigmundur til Winnipeg þar sem hann dvaldi eitt ár en fór þaðan í Pembínabyggð í N. Dakota og svo í Garðarbyggð árið 1883.  Þau fluttu einu sinni enn og nú í Argylebyggð í Manitoba árið 1902.