
Aftari röð: Árni, Rósa, Ingólfur. Fyrir framan sitja Ásgeir og Sigríður með Óla Alfreð. Mynd RbQ
Sigríður Árnadóttir fæddist 30. mars, 1858 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin í Wynyard, Saskatchewan 28. desember,1957.
Maki: 1) Jónas Jónsson f. 3. apríl, 1852, d. 8.júní, 1882. 2) 1885 Ásgeir Guðjónsson f. 1854, d. 1951 í Saskatchewan.
Börn: Með Jónasi 1. María f. 1882 2. Rósa f. 23. maí,1882 í Eyjafjarðarsýslu. Með Ásgeiri 1. Árni Jónas f. 22. nóvember, 1886 2. Ingólfur (Ingi) f. 1887 3. Óli Alfreð (Alfred) f. 4. október, 1897.
Sigríður nýorðin ekkja flutti vestur um haf í ágúst, 1882 með Rósu. Vesturfaraskrá segir Maríu hafa farið með þeim vestur en heimildir vestra, bæði í N. Dakota og Vatnabyggðum í Saskatchewan nefna hana hvergi. Annað hvort hefur hún orðið eftir á Íslandi eða dáið á leiðinni vestur. Sigríður fór um Duluth í Minnesota á leiðinni vestur í Pembina sýslu í N. Dakota. Hún flutti í Eyfordbyggð vorið 1883 og þaðan sama ár í Garðarbyggð. Þar hófu hún og Ásgeir búskap árið 1885 og bjuggu til ársins 1905 en þá fluttu þau norður í Vatnabyggð í Saskatchewan og námu þar land. Bjuggu á jörð sinni til ársins 1941, fluttu þá til Rósu, dóttur Sigríðar, og hennar manns, Ólafs Guðmundssonar þar sem þau bjuggu síðan.
