Sigríður Bjarnadóttir fæddist í Gröf í Víðidal í Húnavatnssýslu 22. mars, 1864. Dáin 9. apríl, 1941 í Grand Forks í N. Dakota.
Maki: Guðmundur Jónsson fæddist 18. febrúar, 1849 í Gullbringusýslu, d. í Mountain, N. Dakota 1. júní, 1926 í N. Dakota.
Börn: 1. Anna Kristrún f. 21. desember, 1889 2. Bjarni Valtýr 3. Guðrún Ingibjörg 4. Sólveig Aldís 5. Óskar Tryggvi 6. Elín Þorbjörg 7. Bjarney Jensína d. 18 ára. Tvö önnur börn þeirra dóu í æsku.
Sigríður flutti vestur til N. Dakota árið 1887 og giftist Guðmundi nokkru síðar. Hann flutti vestur árið 1887 og fór fyrst til Chicago en þar átti hann systur. Ári seinna flutti hann á land nærri Svold í N. Dakota þar sem hann bjó í sjö ár. Seldi það og flutti til Mountain. Vorið 1913 flutti fjölskyldan norður í Saskatchewan í Kanada og settist að nærri bænum Climax í suðvestur horni fylkisins. Þar bjó Guðmundur til ársins 1920 en þá sneri hann til baka til Mountain í N. Dakota þar sem hann lést.