Sigríður Björnsdóttir

ID: 12216
Fæðingarár : 1869
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1936

Sigríður Björnsdóttir fæddist 13. janúar, 1869 í N. Múlasýslu. Dáin í Marshall í Minnesota 31. maí, 1936. Sarah í Minnesota.

Maki: 1) James McCready f. c1853, d. fyrir 1900 2) 5. mars, 1901: Charles August Adler f. 31. janúar, 1875, d. 25. maí, 1959.

Börn: Með James 1. Mabel f. 5. maí, 1887 2. George Harper f. 15. ágúst, 1889 3. Bertha f. 1890 4. James f. 15. september, 1892 í Marshall. Með Charles 1.  Eugene Charles f. 17. júlí, 1902 2. Lloyd Donovan f. 25. ágúst, 1906.

Sigríður  flutti vestur til Kanada árið 1878 með fósturforeldrum sínum, Sigfinni Péturssyni og Sigurbjörgu Sigurðardóttur. Þau fóru suður til Minnesota árið 1800. Eftir fáein ár fékk Sigríður vinnu á hóteli í smábænum Marshall í Lyonsýslu.  Hún bjó alla tíð í Minnesota.