ID: 1546
Fæðingarár : 1859
Dánarár : 1928
Sigríður Einarsdóttir fæddist í V. Skaftafellssýslu 9. júní, 1859. Dáin 6. nóvember, 1928 í Victoria, Bresku Kólumbiu.
Maki: Einar Brandsson f. 15. nóvember, 1861 í V. Skaftafellssýslu, d. 25. júní, 1933 í Victoria.
Börn: 1. Margrét Jakobína f. í Victoria í B.C. 23. febrúar, 1898. 2. Brandur 3. Guðmundur (James).
Þau fluttu til Kanada árið 1886 og fóru ári síðar vestur að Kyrrahafi og settust að í Victoria á Vancouvereyju. Þar fékk Einar fljótlega vinnu við kirkjugarðinn í Ross Bay.
