ID: 14359
Fæðingarár : 1870
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1945

Sigríður Eiríksdóttir Mynd VÍÆ IV

Páll Guðmundsson Mynd VÍÆ IV
Sigríður Eiríksdóttir fæddist árið 1870 í N. Múlasýslu. Dáin 12. október, 1945 í Lundar.
Maki: 1901 Páll Guðmundsson f. 1868 í N. Múlasýslu. Dáinn í Lundarbyggð 15. apríl, 1955.
Börn: 1. Anna Ingibjörg 2. Guðný Valgerður f. 1903 3. Eirikka f. 1905 4. Rannveig f. 1907, d. 1967 5. Guðrún Björg f. 1909, d. 1970.
Páll fór vestur árið 1894, samferða Sveini bróður sínum og fjölskyldu hans. Þeir námu lönd í Lundarbyggð og bjuggu þar. Sigríður flutti vestur þangað árið 1900 en þangað hafði faðir hennar, Eiríkur Hallsson, flutt árið 1893.
