Sigríður H Kristjánsdóttir

ID: 9209
Fæðingarár : 1855
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1940

Jónas Hallgrímsson Hall og Sigríður Herdís Kristjánsdóttir Mynd Well Connected

Sigríður Herdís Kristjánsdóttir fæddist 2. nóvember, 1852 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin í N. Dakota árið 1940.

Maki: 1874 Jónas Hallgrímsson f. í Eyjafjarðarsýslu 1. ágúst, 1852, d. í N. Dakota árið 1931. Jonas Hall vestra.

Börn: 1. Steingrímur Kristján f. 16. nóvember, 1877 á Gimli 2. Jóhann Gunnar f. 12. mars, 1879 á Gimli 3. Arthur Frímann f. 15. apríl, 1882 í Garðarbyggð 4. Ástvaldur Kjartan f. 11. febrúar, 1884 í Garðarbyggð 5. Jakob Friðrik f. 29. mars, 1886 í Garðarbyggð 6. Vilhjalmur Franklin f. 18. apríl, 1888 í Garðarbyggð.

Jónas og Sigríður fluttu vestur um haf árið 1874 og fóru til Ontario í Kanada. Þau bjuggu fyrst um sinn í Toronto en fluttu þaðan til Millbrook og vann Jónas hvaða vinnu sem bauðst. Vorið 1877 fóru þau vestur til Winnipeg þer sem þau bjuggu til hausts en fóru þá til Gimli.  Þaðan lá leiðin til  Garðarbyggð í N. Dakota þar sem þau bjuggu alla tíð.