Sigríður Jónasdóttir

ID: 5896
Fæðingarár : 1878
Dánarár : 1934

Sigríður Jónasdóttir fæddist 18. september, 1878 í Húnavatnssýslu. Dáin í Winnipeg 1. október, 1934.

Maki 1) 1900 Ásmundur Pétur Jóhannsson f. í Húnavatnssýslu 6. júlí, 1875, d. í Winnipeg 23. október, 1953.

Börn: 1. Jónas Valdimar 2. Kári Wilhelm f. 2. júlí, 1903 3. Grettir Leo f. 11. febrúar, 1905, d. 28. maí, 1985.

Ásmundur og Sigríður fluttu vestur árið 1900 og fór Ásmundur fljótlega að hasla sér völl í byggingariðnaðinum. Hann byggði ótal stórhýsi um ævina í borginni og auðgaðist vel. Tók alla tíð virkan þátt í félagslífi landa sinna svo og samfélagsmálum í Manitoba.