ID: 8335
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1825
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1910

Sigríður Jónsdóttir
Sigríður Jónsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1825. Dáin 31. mars, 1910 í Winnipeg
Maki: 1) Sveinn Þórarinsson. Hann lést á Íslandi árið 1869. 2) William Taylor. Hann var bróðir John Taylor sem svo mikinn þátt átti í staðarvali fyrir Nýja Ísland.
Börn: 1. Björg 2. Kristín 3. Jón (Nonni) f. 16. nóvember, 1857 4. Sigríður d. í Bellingham í Washington 12. febrúar, 1916. 5. Ármann (Manni) f. 1861, d. 1885 6. Friðrik f. 4. nóvember, 1864, d. 25. mars, 1942.
Sigríður flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og hélt áfram til Nýja Íslands þar voru vinir og vandamenn. Hún flutti þaðan til Winnipeg um skeið en seinna lá leið hennar í Argylebyggð þar sem hún bjó síðan.
