Sigríður Jónsdóttir fæddist á Mýri í S. Þingeyjarsýslu árið 1896.
Maki: 18. apríl, 1916 Baldur Haraldsson fæddist í Winnipeg 2. apríl, 1888. Dáin þar 14. september, 1952. Baldur H. Olson vestra.
Börn: 1. Katrín Sigríður f. 1917 2. Eileen Marjory f. 1921 3. Eric Baldur f. 1928 4. Norman Hugh.
Sigríður fór vestur árið 1900 með bróður sínum, Hallgrími. Faðir þeirra, Jón Jónsson frá Mýri, fór vestur ekkill með sjö börn sín árið 1903. Sigríður var tekin í fóstur af Jóhanni Gottfreð Þorgeirssyni og Hallfríði Jónsdóttur, frænku sinni. Baldur var sonur Haraldar Jóhannessonar og Karítasar Einarsdóttur sem fluttu til Winnipeg árið 1882. Baldur varð læknir í Winnipeg. Baldur og Sigríður voru tónlistarfólk, hún lék á píanó og bæði sungu þau í kór Fyrstu lúthersku kirkjunnar í Winnipeg.
