
Sigríður Sigurgeirsdóttir Mynd VÍÆ I
Sigríður Sigurgeirsdóttir fæddist 28. janúar, 1896 í Hnausabyggð í Nýja Íslandi..
Maki: Ólafur Ólafsson fæddist í Fagraskógi í Fljótsbyggð 22. oktober, 1893.
Börn: 1. Margrét Ólöf f. 20. júní, 1917 2. Haraldur Sigmar f. 15. Júní, 1918 3. Grace Elenore f. 26. ágúst, 1920.
Sigríður var dóttir Sigurgeirs Einarssonar og konu hans Guðbjargar Björnsdóttur. Sigurgeir flutti vestur með föður sínum, Einari og stjúpmóður, Ólafíu Handóttur árið 1878. Þau fóru til Nýja Íslands. Sigurgeir flutti þaðan til Winnipeg þar sem hann bjó nokkur ár. Flutti í Breiðuvík í Hnausabyggð þar sem faðir hans var kominn. Þeir bjuggu á Mýrum. Ólafur var sonur Ólafs Oddssonar og Kristbjargar Antoníusdóttur, sem vestur fóru árið 1879 og settust að í Manitoba.
