Sigríður Stefánsdóttir

ID: 12287
Fæðingarár : 1862
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1943

Sigríður Stefánsdóttir fæddist í N. Múlasýslu árið 1862. Dáin 17. september, 1943 í Winnipeg.

Maki: 1887  Stefán Oddleifsson fæddist í Strandasýslu árið 1864. Dáinn 13. mars, 1903 í húsbruna í Hnausabyggð.

Börn: 1. Stefán f. 1887, d. 1888 2. Þorsteinn f. 1889, d. 1889 3. Guðmundur (Mundi), d. 1934 4. Jón Bjarni (Jack) f. 19. nóvember, 1890, d. 12. ágúst, 1853 5. Stefán f. 1894, dó í húsbruna 1903 6. Antoníus Lawrence f. 1896, d. í húsbrúna árið 1903 7. Unnar Oddleifur f. 26. desember, 1899, d. 6. apríl, 1972 8. Þórður fæddist andvana 1901.

Sigríður fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 með foreldrum sínum, Stefáni Þorsteinssyni og Sigurborgu Stefánsdóttur.  Stefán fór vestur til Winnipeg árið 1885. Vann þar í borg nokkur ár við trésmíðar og verslun. Stefán og Sigríður settust að í Hnausabyggð. Eftir brunann 1903 flutti Sigríður í Geysirbyggð til Bjarna Ólafssonar í Gullbringu þar í byggð en hann hafði nýverið misst konu sína, Solveigu Guðmundsdóttur. Sigríður var bústýra hjá Bjarna og erfði hann. Hún bjó í Gullbringu en flutti seinna til sonar síns, Unnars í Winnipeg.