Sigríður Stefánsdóttir fæddist í N. Dakota 11. júní, 1889. Dáin í Minnesota 5. apríl, 1975.
Maki: Ólafur Sigurjón fæddist í Akrabyggð í N. Dakota árið 1888, d. 20. mars, 1951 í Kaliforníu. Olafur (Oliver) Sigurjon Freeman og O. S. Freeman vestra.
Börn: 1. William f. 1912 2. Kristján f. 1914 3. Stefán Frederick Holm f. 28. mars, 1915 4. Donald Wilmar f. 6. apríl, 1917 5. Erlingur f. 1920 6. Helen f. 1925 7. Olive f. 1929.
Sigríður var dóttir Stefáns Jónssonar og Hólmfríðar Hansdóttur úr Borgarfirði sem gefin voru saman í N. Dakota 18. janúar, 1889 og settust að í Upham. Ólafur var sonur Jóns Jónssonar úr Dalasýslu og Helgu Jakobínu Ólafsdóttur frá Bjarnastöðum í Hvítársíðu, landnema í Akrabyggð í N. Dakota. Ólafur var bankastarfsmaður í Souris í N. Dakota, bjó í Upham einhver ár en svo flutti fjölskyldan á Long Beach í Kaliforníu. Stuttu eftir lát Ólafs flutti Sigríður til Minneapolis en þar bjuggu þá synir hennar, Stefán og Donald.
