Sigríður Þorvaldsdóttir fæddist árið 1834 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin 2. nóvember, 1921 í Clatsop sýslu í Oregon. Sarah Witalien vestra.
Maki: Benedikt Vídalín Halldórsson f. árið 1835 í Eyjafjarðarsýslu. Witalien eða Vidalin vestra.
Börn: 1. Ari Vídalín (Harvey Witalien) f. 1864 2. Björg (Bertha Witalien) f. 1865 3. Halldór Vídalín f. 1869.*
Þau fluttu vestur til Wisconsin árið 1873 en fluttu seinna þaðan í íslensku byggðina í Lyon sýslu í Minnesota. Í manntali þar segir að fjölskyldan búi í bænum Marshall. Benedikt er skráður þar sem verkamaður með nafnið “Witalien“ Sigríður flutti seinna vestur að hafi með Björgu og Halldóri og settust að í Clatsop sýslu í Oregon.
*Tvíburar, Júlíus og Benedikt Benediktssyni fóru vestur ársgamlir árið 1873 með Dýrleifu Björnsdóttur. Í Vesturfaraskrá bls. 291 segir að drengir þessir séu dóttursynir Dýrleifar. Ekki hafa heimildir fundist hér um þessa dóttur Dýrleifar en í heimildum vestra er þeirri spurningu varpað fram hvort þeir séu synir Benedikts og Sigríðar.
