
Sigrún Sigurdson Mynd VÍÆ V
Sigrún Sigurdson fæddist í Árborg, Manitoba 3. nóvember, 1918.
Maki: Frederick Olaf Martin f. í Montreal, Kanada 31. mars, 1914, d. 20. ágúst, 1964 í Winnipeg.
Börn: 1. Louise f. 11. júlí, 1943 2. Sigrún Helen f. 5. júlí, 1947 3. Frederick Bruce f. 3. maí, 1949 4. Patricia Lynn f. 29. mars, 1954 5. Maureen Suzan f. 12. nóvember, 1955 6. Ann Heather f. 6. maí, 1961.
Foreldrar Sigrúnar voru Sigurmundur Sigurdson og seinni kona hans, Svanbjörg Sigfúsdóttir. Sigrún lauk grunnskólanámi í Árborg og menntaðist frekar í Winnipeg. Hún flutti til Churchill árið 1933 og þangað kom Frederick árið 1935. Hann átti við veikindi að stríða og vegna þess fluttu þau frá Churchill til Calgary 1961 og voru þar í eitt ár. Þaðan lá leið þeirra til Arizona 1962 en þegar veikinda hans fluttu þau til baka 1964 þar sem hann lést. Sigrún flutti þá aftur til Churchill og bjó þar. Hún var athafnasöm, sat í bæjarstjórn og verslunarráði bæjarins. Loks má geta þess að hún var í hafnarstjórn 1972-1980.
