Sigþór E Jónsson

ID: 20039
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1892
Dánarár : 1962

Sigþór Emil Jónsson Mynd VÍÆ IV

Sigþór Emil Jónsson fæddist 17. mars, 1892 í Cavalier í N. Dakota. Dáinn 21. mars, 1962 í Garðarbyggð. Emil J Sigurdsson vestra.

Maki: 10. nóvember, 1922 Sigrún Jónsdóttir f. í Garðarbyggð í N. Dakota 22. nóvember, 1897. Sigurdsson vestra.

Börn: 1. Jón Baldvin f. 15. ágúst, 1924 2. Stephan Francis f. 20. janúar, 1927 3. Lois Guðrún f. 19. ágúst, 1929 4. Lloyd Fredrick f. 19. ágúst, 1929, tvíburi 5. Emily Guðbjörg f. 6. október, 1931 6. Cecil Klar f. 27. nóvember, 1934 7. Paul Burton f. 14. nóvember, 1939.

Foreldrar Sigþórs voru Jón Sigurðsson og Baldvina Baldvinsdóttir, sem vestur fluttu til N. Dakota árið 1890 og bjuggu í Cavalier.  Sigrún var dóttir Jóns Jónssonar og Guðbjargar Guðmundsdóttur, landnema í Garðarbyggð. Sigþór var bóndi í Garðarbyggð þar sem þau Sigrún bjuggu alla tíð.