Sigurbjörg Björnsdóttir fæddist 22. ágúst, 1827 í N. Múlasýslu. Dáin 1895 í Mountain í N. Dakota.
Maki: Sveinn Þorsteinsson f. 14. apríl, 1815 í N. Múlasýslu. Dó úr bólusótt í Mikley haustið 1876. Sigurbjörg var þriðja kona hans.
Börn: 1. Pálína f. 22. júlí, 1851 2. Katrín Elísabet f. 21. október, 1871. Sigurbjörg átti 1. Jóhann(es) Vigfússon með Vigfúsi Guðmundssyni 2. Björn Mikaelsson, sonur Mikaels Gellisonar 3. Oddur f. 4. júlí, 1868, faðir óþekktur. Sveinn átti börn með fyrstu eiginkonu sinni, Ingibjörgu Pálsdóttur: 1. Páll f. 19. febrúar, 1836, d. sama ár 2. Una f. 31. mars, 1837, d. april, 1837. Sveinn átti börn með Önnu Hallsdóttur, ekkju eftir Jón Jónsson á Hallbjarnarstöðum: 1. Þorsteinn f. 19. nóvember, 1860 2. Kristín f. 29. júlí, 1863 3. Stefanía f. 9. janúar, 1865.
Sveinn og Sigurbjörg fóru vestur með börnum sínum og tengdabörnum árið 1876 og settust að í Mikley sama ár. Þar hét Borðeyri. Sigurbjörg bjó einhver ár með börnum sínum í Fljótsbyggð en flutti þaðan til N. Dakota árið 1880 og bjó í Pembina. Flutti seinna til Mountain.
