Sigurbjörg Davíðsdóttir

ID: 4464
Fæðingarár : 1828
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1902

Sigurbjörg Davíðsdóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1828. Dáin í Manitoba 24. janúar, 1902.

Maki: Jón Jónsson fæddist í Dalasýslu 10. nóvember, 1824, d. í Álftavatnsbyggð í Manitoba 13. janúar, 1902.

Börn: 1. Sigurður f. 1851, d. Lundar í Manitoba 7. september, 1937 2. Ingibjörg f. árið 1852.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1891 og fóru til Ingibjargar, dóttur sinnar sem bjó í Álftavatnsbyggð með sínum manni, Snæbirni Jónssyni úr Múlasveit.