
Sigurbjörg Einarsson Mynd VíÆ V
Sigurbjörg Jónsdóttir fæddist í Manitoba 22. mars, 1898. Dáin 8. nóvember, 1957.
Maki: 1917 Einar Björnsson f. í N. Múlasýslu 27. febrúar, 1973.
Börn: 1. Stefanía f. 1918 2. Jóhann Albert f. 1919, d. 18. september, 1959 3. Emil f. 1921 4. Lorne Allan f. 1926 5. Einar Jón f. 1928 6. Nelson f. 1930 7. Aenone f. 1937.
Sigurbjörg var dóttir Jóns Inga Einarssonar og Jóhönnu Jónsdóttur er vestur fluttu árið 1890. Sigurbjörg kaus ung að mennta sig, stundaði nám í Jóns Bjarnasonar Academy í Winnipeg og lauk kennaranámi í kennaraháskóla. Einar var sonur Björns Jónssonar og Stefaníu Sigfúsdóttur sem vestur fluttu til Manitoba árið 1892. Þau settust fyrst að í Vestfoldbyggö en 1894 fluttu þau í Grunnavatnsbyggð þar se, Björn bjó til dauðadags. Að föður sínum látnum tók Einar við og en eftir nokkur ár flutti hann til Oak Point þar sem hann gerðist mikill athafnamaður. Byrjaði á mikilli nautgriparækt og stundaði líka fiskveiðar. Hann rak lengi bæði fisk- og nautgripaverslun.
