Sigurbjörg Friðriksdóttir

ID: 6991
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1946

Mæðgur; Sigurbjörg Friðriksdóttir, Ingibjörg Sigmundardóttir, dóttir Sigurbjargar. Guðríður Gísladóttir móðir Sigurbjargar og Beatrice, dóttir Ingibjargar. Mynd O 1-6 H

Sigurbjörg Friðriksdóttir fæddist árið 1864 í Skagafjarðarsýslu. Dáin árið 1946 í Elfros.

Maki: 1883 Sigmundur Jóhannsson f. í Skagafjarðarsýslu árið 1857. Dáinn í Elfros í Saskatchewan árið 1918.

Börn: 1. Ingibjörg f. 1887 2. Friðrik d. 1956 3. Jóhann Arnór d. 1973.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1894 með Ingibjörgu. Þau settust að í Brownbyggð í Manitoba árið 1897.