ID: 13641
Fæðingarár : 1833
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1917
Sigurbjörg Sigurðardóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1833. Dáin í N. Dakota árið 1917.
Maki: 28. júlí, 1862 Benedikt Pétursson f. árið 1839 í N. Múlasýslu, d. 31. júlí, 1906 í Mountain, N.Dakota.
Börn: 1. Ingibjörg f. 1866 2. Tryggvi f. 1871.
Þau fluttu vestur til Nýja Íslands árið 1876 og fóru norður í Mikley. Þau fluttu austur yfir Winnipegvatn til Bad Throat River en eftir nokkur ár fóru þau til Winnipeg. Árið 1885 var grunnskóli endurreistur í Fljótsbyggð og var Benedikt ráðinn kennari. Fjölskyldan flutti í Akrabyggð í N. Dakota þar sem þau voru í þrjú ár. Sneru þá aftur til Nýja Íslands og settust að á Gimli þar sem Benedikt vann við skósmíði. Þau fluttu þaðan eftir fáein ár í Garðarbyggð í N. Dakota.
