Sigurbjörg Tómasdóttir

ID: 8194
Fæðingarár : 1873
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1937

Sigurbjörg Tómasdóttir fæddist 28. desember, 1873 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin 7. nóvember, 1937 í N. Dakota.

Maki: 1893 Ólafur Kristinsson f. í Eyjafjarðarsýslu 19. ágúst, 1870. Dáinn í Garðarbyggð 7. desember, 1943. Olafson vestra.

Börn: 1. Katrín f. 24. september, 1894 2. Pétur f. 25. janúar, 1897 3. Guðrún Anna f. 22. september, 1900 4. Kristinn f. 2. apríl, 1902 5. Aðalbjörg f. 21. júní, 1905.

Sigurbjörg var dóttir Tómasar Jóhannssonar og Guðrúnar Árnadóttur sem fluttu vestur til N. Dakota árið 1888. Ólafur fór vestur til Kanada árið 1873 með foreldrum sínum, Kristni Ólafssyni og Katrínu Ólafsdóttur. Þau fóru suður til Milwaukee í Wisconsin og þaðan vestur til Minnesota árið 1876. Settust svo að í Garðarbyggð í N. Dakota árið 1880.