Sigurbjörn Guðmundsson

ID: 12092
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1829
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Sigurbjörn Guðmundsson fæddist árið 1829 í N. Múlasýslu. Skrifaði sig Snowfield vestra.

Maki: 1857 Signý Magnúsdóttir f. í N. Þingeyjarsýslu, d. á Íslandi.

Börn: Þau eignuðust sjö börn en aðeins tvö náðu fullorðinsaldri:  1. Magnús f. 1857 2. Hallfríður f. 1861

Sigurbjörn, Magnús og Hallfríður fóru vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1879. Sigurbjörn fór til Nýja Íslands og var þar í eitt ár. Hann fór þaðan suður í Thingvallabyggð árið 1880 og nam land stutt frá Mountain.