Sigurborg Sigfúsdóttir

ID: 12286
Fæðingarár : 1833
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1900

Sigurborg Sigfúsdóttir fæddist árið 1833 í N. Þingeyjarsýslu. Dáin 1900 í Nýja Íslandi.

Maki: Stefán Þorsteinsson fæddist í Vopnafjarðarhreppi í N. Múlasýslu 12. október, 1833.  Dáinn 15. mars, 1893.

Börn: 1. Sigríður f. 1862 2. Þórey f. 1867 3. Steinunn f. 1873.

Fluttu vestur árið 1876 og bjuggu fyrsta veturinn nærri Gimli. Fluttu í Hnausabyggð ári seinna. Þar bjuggu þau í fjögur ár en fluttu 1881 út í Mikley þar sem þau bjuggu fáein ár. Þaðan lá leiðin til Selkirk í tvö ár og svo til Winnipeg í nokkur ár. Þau fóru aftur á land sitt í Hnausabyggð og bjuggu þar stutt en fluttu þaðan í Geysirbyggð og bjuggu hjá dóttur sinni, Þóreyju og manni hennar, Gesti Oddleifssyni til dauðadags.