Sigurður Árnason

ID: 11221
Fæðingarár : 1868
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1947

Sigurður G Árnason Mynd VIÆ IV

Sigríður Jónsdóttir Freeman Mynd VIÆ IV

Sigurður Guðni Árnason fæddist í S. Þingeyjarsýslu 29. nóvember, 1868. Dáinn 15. apríl, 1947 í N. Dakota.

Maki: 1. desember, 1901 Sigríður Lára Jónsdóttir (Freeman) f. í Akrabyggð í N. Dakota 2. desember, 1883.

Börn: 1. Jóna Helga Jakobína f. 21. september, 1902 2. Guðrún Sigríður f. 29. júlí, 1904 3. Ragnheiður Jóhanna f. 28. desember, 1906 4. Guðmundur f. 7. september, 1908 5. Ágúst Kristinn Ingimar f. 3. október, 1910 6. Guðfinna Fjóla f. 11. febrúar, 1912 7. Hjartfríður Lilja f. 16. desember, 1914 8. Sigurrós Unnur f. 15. desember, 1916 9. Ólafur f. 19. júní, 1919 10. William f. 18. ágúst, 1921 d. 4. nóvember, 1961.

Sigurður fór einsamall vestur um haf árið 1888 og eftir stutta dvöl í Winnipeg í Manitoba flutti hann til N. Dakota. Hann gerðist bóndi í Upham árið 1901 og bjó þar á landi sínu til ársins 1924 en flutti þá í Vatnabyggð í Saskatchewan og settist að í Wynyard. Þaðan lá svo leiðin til baka til N. Dakota árið 1942. Sigríður Lára var dóttir hjónanna Jón Jónssonar Freeman og Helgu Jakobínu Ólafsdóttur.