Sigurður Einarsson

ID: 10674
Fæðingarár : 1852
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1922

Sigurður Einarsson fæddist 24. maí, 1852 í N. Þingeyjarsýslu. Dáinn í San Francisco 4. janúar, 1922. Anderson vestra.

Maki: 1) Oktavía Jóhannesdóttir f. 1863, d. í N. Dakota 1884. 2) Halldóra Guðmundsdóttir f. í Húnavatnssýslu 16. júlí, 1871, d. 20. janúar, 1934.

Börn: Með Oktavíu 1. Hannes f. 1. mars, 1883 á Íslandi, d. 15. apríl, 1964. Með Halldóru 1. Margrét María f. í Garðar N. Dakota 12. apríl, 1895 2. Guðmundur f. 12. apríl, 1899 3. Einar.

Sigurður og Oktavía fluttu vestur árið 1883 og settust að nærri Mountain í N. Dakota. Með þeim voru foreldrar Oktavíu, Jóhannes Torfason og Helga Daníelsdóttir og börn þeirra. Sigurður gerðist húsamálari og vann í  Winnipeg þar sem hann kynntist Halldóru. Hún fór vestur þangað árið 1889. Þau bjuggu suður í Garðar fram yfir aldamót, fluttu þá til Winnipeg. Dóttir þeirra Margrét varð söngkona og starfaði yfir 30 ár í San Francisco en hjá henni bjuggu foreldrar hennar á efri árum.