Sigurður Eiríksson

ID: 12198
Fæðingarár : 1870

Guðrún Jónsdóttir Mynd A Century Unfolds

Sigurður Eiríksson Mynd A Century Unfolds

Sigurður Eiríksson: Fæddur í A. Skaftafellssýslu 24.júlí, árið 1870. Dáinn 23.júní, 1934. Tók nafnið Holm vestanhafs

Maki: 1894 Guðrún Jónsdóttir f. í sömu sýslu 22.ágúst, árið 1873. Dáin 14.febrúar, 1952

Börn: 1. Jón Sigurðsson f.27.nóvember, 1897 2. Guðný Kristín f. 13.nóvember, 1902

3. Björgvin Ágúst f. 22.ágúst, 1907.

Fluttu vestur árið 1902 og fóru til Minneota í Minnesota. Bjuggu þar í tvö ár.

Fluttu þaðan til Winnipeg og bjuggu þar í 10 ár. Þaðan lá leiðin í Framnesbyggð árið 1914.